Leikgleði
Látbragðsleikir og hlátrasköll
Fyrir hversu marga:
3 - 6 spilarar
Hvaða tíma tekur spilið:
20+ mínútur
Aldursbil:
5+ ára
Sprenghlægilegur látbragðsleikur fyrir alla fjölskylduna!
Ertu vampíra að bursta tennurnar eða froskur að elda kvöldmatinn? Þú leikur ýmsar persónur í skrítnum aðstæðum á meðan aðrir giska á hver þú ert og hvað þú ert að gera.
Kastaðu teningunum til að sjá hver þú ert og hvað þú átt að gera. Einungis látbragð er leyft, orð eru bönnuð! Giskaðu rétt til að hoppa á milli reita – og alla leið í mark til að sigra leikinn!
Athugið! Það má búast við fíflagangi í bland við hlátrasköll í þessu spili.
