Vampíra á Veiðum

Fyrir hversu marga:
2 - 6 spilarar

Hvaða tíma tekur spilið:
30+ mínútur

Aldursbil:
6+ ára

Lýsing:
Þú ákveður að skoða ævafornan, yfirgefinn kastala ásamt vinum þínum. Hliðin lokast um leið og þið stígið inn fyrir.
Yfirvampíran sjálf, Drakúla greifi, bíður eftir ykkur í ofvæni! Komist þið burt úr kastalanum áður en vampírurnar bíta ykkur?
Enginn er óhultur í kastalanum sem er fullur af blóðslettum, kyndlum, lyklum og leynihlerum.
Ef Drakúla fangar einhvern vin þinn og bítur hann, þá breytist hann í vampíru og fer að elta þig.
Hver ber sigur úr býtum, þú, einhver vina þinna eða vampírurnar?